Contalgen Funeral kemur víða við á Iceland Airwaves

Skagfirska hljómsveitin Contalgen Funeral munu svo sannarlega láta til sín taka á stærstu tónlistarhátíð Íslands, Iceland Airwaves, sem hefst á morgun 13. október. Þar munu þau koma þrisvar fram á þremur dögum.

Airwaves túrinn hefst á morgun, fimmtudag kl. 19, á veitingastaðnum Kolabrautinni, sem er staðsettur á efstu hæð Hörpu Tónlistarhúss. Frítt er inn á tónleikana þar sem þetta er ekki hluti af dagskrá hátíðarinnar.

Föstudaginn 14. október munu hljómsveitin spila á Glaumbar sem er einn af opinberum stöðum hátíðarinnar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 og til að koma á þá þarf að vera með armband á Iceland Airwaves.

Laugardaginn 15. október verður brjálað fjör á Dillon með fullt af flottum böndum. Þar má til dæmis nefna Mammút og Bárujárn en Contalgen Funeral verður einmitt að spila á milli þessara tveggja hljómsveita. Hljómsveitin stígur á svið kl. 22.00 og er frítt inn fyrir alla.

Fleiri fréttir