Contalgen funeral leggur land undir fót
Nú er hin skagfirska hljómsveit, sem sló í gegn á Gærunni, komin glænýja smáskífu sem inniheldur fimm lög. Hægt er að nálgast þessa smáskífu, sem nefnist Gas Money, á gogoyogo.com eða í Stúdíó Benmen í gamla tengilshúsinu.
Einnig er hljómsveitin að leggja land undir fót um helgina. Stefnan er tekin til Reykjavíkur þar sem spilað verður á Reykjavík Backpackers kl. 18.40, ásamt öðrum böndum á föstudag. Svo verður brunað norður aftur á laugardag og spilað á Græna Hattinum á Akureyri, ásamt Ljósvaka og Of Monsters and Men. Þessir tónleikar eru upphitun fyrir Iceland Airwaves hátíðina sem fram fer í september.
Hægt er að nálgast tóndæmi, myndir og aðrar upplýsingar um Contalgen Funeral á facebook síðu þeirra.