Contalgen Funeral og Úlfur Úlfur á Menningarkvöldi Nemó

Menningarkvöld Nemós nemendafélags FNV verður haldið föstudaginn 28. október nk. Þar verður mikið um að vera en hljómsveitirnar Contalgen Funeral og Úlfur Úlfur munu stíga á svið og einnig verður keppt í dragi og body-paint. Kynnar kvöldins verða engir aðrir en Steindi jr. og Bent.

Fram kemur á heimasíðu FNV að Menningarkvöldið, sem hefur verið árlegur viðburður í skólanum, er opið fyrir almenning og hvetur Nemó fólk til að mæta og eiga skemmtilegt kvöld með nemendum Fjölbrautaskólans.

Menningarkvöldið verður haldið í sal skólans og hefst skemmtunin kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:30. Aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir meðlimi NFNV og 12 ára og yngri en 2000 kr. fyrir aðra.
Hér má sjá myndband með hljómsveitunum Contalgen Funeral og Úlfi Úlfi sem koma til með að skemmta á Menningarkvöldinu.

 

Fleiri fréttir