Dagrún Sól og Hrafnhildur Kristín sigruðu í söngvarakeppninni

Hin árlega Söngvarakeppni Grunnskóla Húnaþings vestra fór fram sl. föstudagskvöld 18. janúar í Félagsheimilinu Hvammstanga. Líkt og áður var keppt í tveimur flokkum, yngri og eldri. Á Norðanáttinni segir að sigurvegari í yngri flokknum hafi að þessu sinni verið Dagrún Sól Barkardóttir en  hún söng lagið Halelúja eftir Jeff Buckley með íslenskum texta. Sigurvegari í eldri flokknum var Hrafnhildur Kristín Jóhannsdóttir með lagið Minning með Björgvini Halldórssyni og Mugison, en lagið flutti hún með nýjum texta og bar lagið heitið Þakklæti og trú.

Fyrstu þrjú sætin í flokkunum skipuðu eftirfarandi:

Yngri flokkur:

  • 1. Dagrún Sól Barkardóttir
  • 2. Júlía Jökulrós Sveinsdóttir og Jóhann Smári Reynisson
  • 3. Emilía Ýr Bryngeirsdóttir

Eldri flokkur:

  • 1. Hrafnhildur Kristín Jóhannsdóttir
  • 2. Jóna Margareta Júlíusdóttir Lundberg
  • 3. Ástríður Halla Reynisdóttir

Að keppninni lokinni skemmtu krakkarnir sér á diskóteki með Dj. Óla Geir.

Fleiri fréttir