Dansmaraþon 10. bekkjar í fullum gangi

Dansmaraþon 10. bekkinga í Árskóla á Sauðárkróki er nú í fullum gangi. Maraþonið er ein af stærstu fjáröflunum vetrarins, en bekkurinn stefnir í skólaheimsókn til Danmerkur í vor. Að þessu sinni fléttast þemadagar og árshátíð inn í maraþonið og hefur því verið mikið um að vera í skólanum.

Skólinn á um þessar mundir 15 ára afmæli sem sameinaður skóli. Að því tilefni snerust þemadagar fyrr í vikunni um sögu skólahalds á Sauðárkróki. Í morgun var farin skrúðganga frá Barnaskólahúsi eftir að gamli skólinn hafði verið kvaddur. Að því loknu var boðið upp á djús og muffins á lóð skólans.

Dansinn hófst svo kl. 11 í morgun og lýkur kl. 13:00 á morgun föstudag. Eru allir hvattir til að líta við og jafnvel taka snúning á dansgólfinu með krökkunum. Nú stendur yfir opið hús í skólanum og verður það til kl 22:00 í kvöld. Nemendur í 8. og 9. bekk veita leiðsögn um skólann á hálfa og heilatímanum þangað til.

Eftir skamma stund, eða kl. 17:00 hefst svo danssýning og vígsla nýja skólans. Á morgun verður aftur opið hús í skólanum kl. 8:00-18:00, með leiðsögn á heila og hálfa tímanum

Einnig er minnt á kaffisölu og matarsölu 10. bekkjar og bókamarkað.

Fleiri fréttir