Darrell Flake framlengir samning sinn
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
24.02.2014
kl. 16.07
Darrell Flake hefur framlengt samning sinn við Körfuknattleiksdeild Tindastóls út næstu leiktíð. „Lýsir stjórn KKD mikilli ánægju með það að hann verði áfram í herbúðum liðsins og hjálpi til við uppbygginguna sem er að eiga sér stað hjá klúbbnum,“ segir í fréttatilkynningu frá körfuknattleiksdeildinni.
Darrell hefur leikið í 29 mínútur með liðinu í vetur en samkvæmt fréttatilkynningu hefur hann á þeim mínútum skorað 17.5 stig og tekið 8,1 frákast í leik.
„Darrell Flake er mikill viskubrunnur og frábær liðsmaður sem kallar ekki allt ömmu sína,“ segir í tilkynningunni.