Deildarmyrkvinn sást vel á Norðurlandi
Tunglmyrkvi var í dag og hér Norðanlands náðum við í skottið í honum en deildarmyrkvi sást vel í veðurblíðunni í ljósaskiptunum í dag. Hér má sjá myndir af deildarmyrkvanum fagra sem blaðamaður Feykis tók í dag.
Samkvæmt Stjörnufræðivefnum sást myrkvinn best frá Asíu og Ástralíu en frá Evrópu sést hann að hluta. Tunglið var almyrkvað þegar enn var dagsbirta á Íslandi og það undir sjóndeildarhring. Samkvæmt upplýsingum úr Almanaki Háskólans fyrir árið 2011 átti almyrkva að ljúka klukkan 14:58 og því einungis sýnilegur Austanlands þar sem tunglið rís fyrst.
Á Stjörnufræðivefnum segir einnig að um var að ræða rauðann tunglmyrkva:
„Þótt fæstir landsmenn sjái rautt almyrkvað tungl verður engu að síður tignarlegt að fylgjast með deildarmyrkvanum. Þegar tunglið rís verður upplýsti hluti þess appelsíngulur með dökkan jarðskugga yfir hægri helmingnum. Auk þess mun tunglið virka óvenju stórt lágt á himninum en það er skynvilla. Tunglið virðist stærra við sjóndeildarhringinn en það í raun og veru er vegna þess hvernig við skynjum lögun himinhvelfingarinnar.“
Tunglmyrkvar sjást frá hálfri jörðinni í senn, það er að segja þeim helmingi jarðar sem snýr að tungli þegar myrkvinn verður. Almyrkvar á tungli sjást að meðaltali á tveggja til þriggja ára fresti frá hverjum stað á jörðinni. Síðasta tunglmyrkvi á Íslandivar þann 21. desember í fyrra og sást í 74 mínútur. Næst sést almyrkvi á tungli frá öllu Íslandi þann 28. september árið 2015.