Deildarstjóraskipti á Hólum

Á deildarfundi hestafræðideildar Háskólans á Hólum nú í vikunni upplýsti Víkingur Þór Gunnarsson um væntanleg deildarstjóraskipti 1. ágúst nk. Víkingur hefur gegnt deildarstjórastarfinu undanfarin 18 ár, en mun nú snúa sér að kennslu og rannsóknum. Við keflinu tekur dr. Sveinn Ragnarsson, sem nú gegnir stöðu dósents við hestafræðideild. Sagt er frá þessu á vef Háskólans á Hólum.

Fleiri fréttir