Deiliskipulag á minjasvæðis Hegranesþings

Til stendur að deiliskipuleggja Hegranesþingstað. Mynd: Úr safni Feykis.
Til stendur að deiliskipuleggja Hegranesþingstað. Mynd: Úr safni Feykis.

Til stendur að deiliskipuleggja minjasvæði Hegranesþings í Skagafirði. Á fundi skipulags- og byggingarnefndar í morgun var lögð fram ósk frá Ástu Hermannsdóttur, verkefnastjóra á Minjastofnun Íslands, um leyfi til handa Minjastofnun Íslands, til að deiliskipuleggja minjasvæði Hegranesþings og nánasta umhverfi. Svæðið er í landi Garðs í Hegranesi.

Áform um deiliskipulag eru samkvæmt 2. mgr. 38. gr. skipulagslaga og verður það unnið á kostnað Minjastofnunar og í fullu samráði við landeigendur. Landeigandi hefur komið að undirbúningi áformanna. Skipulags- og byggingarnefnd féllst á framlagða skipulagslýsingu og lagði til við sveitarstjórn að heimila Minjastofnun að vinna deiliskipulag af svæðinu á sinn kostnað.

Fleiri fréttir