Deiliskipulag gamla barnaskólalóðarinnar liggur frammi til skoðunar
Tillaga að deiliskipulagi íbúðareits milli Sæmundargötu, Ránarstígs og Freyjugötu á Sauðárkróki, lóðina Freyjugötu 25, liggur nú frammi í ráðhúsi sveitarfélagsins frá og með deginum í dag til og með 3. apríl.
Til stendur er að breyta gamla skólahúsinu á lóðinni í fjölbýlishús með ellefu íbúðum og skipta lóðinni jafnframt upp í fjóra hluta, þannig að auk lóðar undir fjölbýlishúsið verði skilgreindar þrjár nýjar lóðir. Tvær þeirra eru ætlaðar fyrir parhús við Freyjugötu og ein lóðin fyrir parhús við Ránarstíg.
Þeim sem telja sig hafa athugasemdir eða ábendingar fram að færa vegna deiliskiplagsins er bent á að gera það skriflega til skipulagsfulltrúa í ráðhúsið við Skagfirðingabraut eða á netfangið jobygg@skagafjordur.is í síðasta lagi 3. apríl nk.
Nálgast má deiliskipulagstillöguna á heimasíðu Svf. Skagafjarðar.