Donni hættir sem þjálfari Tindastóls

Halldór Jón Sigurðsson, Donni, er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla hjá Tindastóli en hann tók við liðinu á erfiðum tíma árið 2011 og stýrði því í efsta sæti í 2. deildinni það ár og síðan þá hefur liðið leikið í 1. deild.

Knattspyrnudeild Tindastóls mun á næstu dögum hefja leit að nýjum þjálfara fyrir liðið og er þeim sem hafa áhuga á starfinu velkomið að hafa samband segir í yfirlýsingu frá félaginu sem einnig þakkar Donna fyrir góðan tíma og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Nokkur félög hafa sýnt Donna áhuga sem eðlilega vilja nýta starfskrafta hans en á Fótbolti.net er hann orðaður við aðstoðarþjálfarastöðuna hjá Val.

Í samtali við Feyki segist hann ekki geta tjáð sig á þessari stundu hvert hann er að fara en það mun koma í ljós á morgun eða hinn.

Fleiri fréttir