Donni ráðinn aðstoðarþjálfari Vals
Halldór Jón Sigurðsson (Donni) hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu hjá Val en eins og fram kom fyrir skömmu hætti hann þjálfun Tindastóls. Á heimasíðu Vals kemur fram að Donni hóf þjálfaraferil sinn ungur að árum þegar hann varð yfirþjálfari yngri flokka hjá Tindastól árið 2007. Tveimur árum síðar varð hann yfirþjálfari Knattspyrnuskóla ÍA á Akranesi og tók síðan við sem yfirþjálfari yngri flokka Vals frá 2010-2011.
„Donni er með UEFA A gráðu frá KSÍ og er íþrótta - og heilsufræðingur að mennt og kennir íþróttir og sund við Hvaleyraskólann í Hafnarfirði. Donni er með efnilegustu þjálfurum á Íslandi í dag enda voru mörg lið sem höfðu áhuga á að fá hann til starfa. Það er okkur Valsmönnum mikið gleðiefni að hafa fengið Donna í Val og væntum við mikils af samstarfinu við hann,“ segir á Valur.is.