Donni ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Tindastóls

Skrifað hefur verið undir samning við  Donna, Halldór Sigurðsson, sem þjálfara Tindastóls fyrir átök næsta árs í fyrstu deildinni í fótboltanum. Donni sem stjórnaði sameinuðu liði Tindastóls og Hvatar kom því í toppsæti 2. deildar sl. sumar og er því öllum hnútum kunnugur hjá félaginu. Undirskriftin fór fram í Hörpunni, menningarhúsi Reykvíkinga klukkan tvö í dag.

 

-Við erum afskaplega ánægð með að hafa gengið frá ráðningu Donna fyrir þau átök sem framundan eru.  Hann þekkir liðið gríðarlega vel, er vel menntaður og metnaðarfullur, segir Ómar Bragi Stefánsson formaður knattspyrnudeildarinnar. - Við gerum okkur grein fyrir því að 1. deildin er mjög sterk en verðum tilbúnir í það verkefni þegar að því kemur.  Við munum leggja áherslu á að halda okkar leikmönnum og vonum svo sannarlega að þeir allir séu tilbúnir í þetta verkefni.  Þessir leikmenn urðu íslandsmeistarar í þriðju deild 2010 og svo íslandsmeistarar í 2.deild 2011.  Að vísu voru Hvatarmenn með okkur sl. keppnistímabil en eins og komið hefur fram hefur því samstarfi nú verið slitið.

Ómar segir áð nú þegar búið er að semja við Donna þá séu næstu skref að semja við leikmenn og hefur hann trú á því að þeir séu klárir enda spennandi fyrir þá að spila í 1.deild þar sem athygli og umfjöllun verður mun meiri og svo að sjálfsögðu sterkari fótbolti.

-Við ætlum að flýta okkur hægt hvað varðar styrkingu leikmannahópsins og ganga fyrst frá málum við okkar leikmenn.  Við höfum mikla trú á þeim og treystum þeim til alls.  Hvort við svo þurfum að styrkja hópinn eitthvað mun bara koma í ljós en það mun aldrei verða neinn hópur leikmanna á ég von á.

Forsvarsmenn Tindastóls sögðu í tilkynningu til fjölmiðla fyrir atburðinn að ef þessi undirritun yrði á  Sauðárkróki ættu fréttamenn og miðlar erfitt með komast alla leið norður enda um langan veg að fara.  „Við ætlum því að skjótast suður enda mun styttra suður en norður og  mætum í höfuðborgina til að kvitta undir samninginn. „ Til að auka enn á spennuna var gefið í skyn að þjálfarinn yrði líkast til sá yngsti í deildinni en einnig sá efnilegasti og myndarlegasti.

Fleiri fréttir