Dorrit og vinkona hennar heimsækja Loðskinn
feykir.is
Skagafjörður
11.10.2013
kl. 12.10
Í morgun heimsótti Dorrit Moussaieff, ásamt vinkonu sinni Alice, frá Alaska, Gestastofu sútarans og verksmiðju Loðskinns á Sauðárkróki. Í fylgd með þeim voru nokkrir erlendir fréttamenn og hundur Dorritar, Sámur, og kom hópurinn með einkaflugvél á staðinn.
Að sögn Sigríðar Káradóttur, framkvæmdastjóra Gestastofu sútarans, er ekki alveg ljóst hvert erindi þeirra Dorritar og Alice væri, en haft var samband við stuttum fyrirvara til að kanna hvort þær gætu komið í heimsókn. Að sjálfsögðu var brugðist við því og reynt að taka sem best á móti þeim.