DÓSA og FLÖSKUSÖFNUN

Stelpurnar í 3. flokki Tindastóls eru nú að fara í dósasöfnun á Sauðárkróki í dag, morgun og fimmtudaginn 6. júní og er hún lokahnykkurinn í fjáröflun þeirra í knattspyrnuskóla á Spáni.

Í tilkynningu segir að stelpurnar verði á ferðinni eftir klukkan 18:00 og munu þær ganga í hús og safna flöskum og dósum og vonast eftir jákvæðum viðbrögðum bæjarbúa. Vilja þær þakka öllum sem hafa styrkt þær til fararinnar.

„Ef um mikið magn er að ræða eða þið eruð ekki heima og viljið gefa dósir eða flöskur er hægt er að hafa samband í Lullu í síma 8625771.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir