Dregið í Powerade-bikarnum í dag
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
12.01.2011
kl. 11.23
Það ríkir mikil eftirvænting meðal leikmanna og stuðningsmanna Tindastóls í körfuknattleik, því í dag kl. 13 verður dregið í undanúrslit Powerade-bikarkeppninnar. Ásamt Tindastóli, verða í pottinum lið KR, Grindavíkur og Hauka. Feykir.is mun fjalla um dráttinn síðar í dag.