Dreifnám hefst 22. ágúst
Dreifnám á Hvammstanga hefst miðvikudaginn 22. ágúst en að sögn Þorkels Þorsteinssonar aðstoðarskólameistara hefja 16 nemendur nám að þessu sinni.
Rakel Runólfsdóttir hefur verið ráðin umsjónarmaður dreifnámsins og að sög Þorkels býður skólinn hana velkomna til starfa.
Kennt verður um fjarfundabúnað í kennsluaðstöðu á neðri hæð samkomuhússins á Hvammstanga. Nemendur munu sækja námslotur til Sauðárkróks sem verða tímasettar í tengslum við viðburði á vegum nemendafélagsins.