Drengjaflokkur í undanúrslit Íslandsmótsins

Drengjaflokkur Tindastóls komst í gærkvöldi í undanúrslit íslandsmótsins með auðveldum sigri á Njarðvíkingum 97-53. Samkvæmt vef Tindastóls var aldrei nein spenna í leiknum og strax um miðjan 1. leikhluta var staðan 22-2.

Eftir það hresstust gestirnir aðeins og var staðan eftir fyrsta leikhluta 29-12 og 47-24 í hálfleik. Strákarnir héldu sínu striki í síðari hálfleik og eftir þriðja leikhluta var staðan 71-32 og lokatölur 97-53 eins og áður sagði,“ segir á vefnum.

Stigahæstur var Pétur Birgisson með 29 stig. Bárður og Kári Mar. rúlluðu liðinu vel og komu allir tólf leikmenn liðsins við sögu í leiknum.

Í undanúrslitum (4-liða) eru auk Tindastóls, KR, Haukar og Grindavík.

Fleiri fréttir