Dúfnaveislan er hafin

Dúfnaveislan 2013 hófst á fimmtán skotvöllum víða um land mánudaginn 1. júlí og stendur til 31. ágúst,en verkefnið er samstarfsverkefni Umhverfisstofnunar (UST), Skotveiðifélags Íslands (SKOTVÍS), skotæfingafélaga sem reka haglabyssuskotvelli, auk styrktaraðila. Markviss á Blönduósi og Ósmann á Sauðárkróki eiga aðild að verkefninu.

Tilgangur dúfnaveislunnar er að hvetja veiðimenn um land allt til að kynna sér þá aðstöðu sem skotvellirnir hafa uppá að bjóða og stunda reglulegar skotæfingar áður en veiðitímabilið hefst og undirbúa sig eins og best verður á kosið.

Reikna má með að rúmlega 10 þúsund veiðikortahafar muni ganga til veiða á næstu mánuðum, en sannir veiðimenn temja sér ákveðnar siðareglur í umgengni sinni við náttúruna og umhverfi sitt og ein af þeim siðareglum er ástundun skotæfinga.  Veiðimaður sem vill hitta bráð sína þarf að vera einbeittur, í formi, fær um að meta fjarlægðir og meðvitaður um eiginleika vopna sinna og skotfæra og því eru veiðimenn hvattir til að nýta sér þennan viðburð til að kynnast því sem skotæfingafélög víða um land hafa uppá að bjóða.

Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að veiðimenn kynna sér opnunartíma þeirra skotvalla sem er næst þeirra heimabyggð og biðji starfsmann vallarins um skortkort.  Markmiðið er að hver veiðimaður nái að skjóta 10 æfingarhringi áður en haldið er til veiða og fái staðfestingu á því hjá starfsmanni vallarins.  Veiðimaður getur síðan skilað inn kortinu til starfsmanns vallarins þegar 10 æfingarhringjum er náð og hann gildir þá sem happdrættismiði í lok viðburðarins (fyrsta vikan í september), en margir styrktaraðilar munu gefa vinninga til að gera þetta allt saman skemmtilegra.

Skotvellirnir bjóða uppá margvíslegar þrautir, s.s. Skeet, Sporting og Trap auk annarra uppstillinga sem eru aðgengilegir á ýmsum tímum.  Veiðimenn geta kynnt sér vefsíður þeirra félaga sem reka vellina, en lista yfir félögin og heimasíður þeirra má finna á skotvellir.is og svo er tilvalið að prófa sem flesta velli.

/Fréttatilkynning

 

 

 

Fleiri fréttir