Dúndurfréttir í kvöld
Það má vænta þess að dúndrandi tónleikar verði í kvöld á Mælifelli á Sauðárkróki þegar hljómsveitin Dúndurfréttir mætir á sviðið. Húsið opnar klukkan 21 og tónleikarnir hefjast hálftíma síðar. „... þetta verður alvöru eitthvað sem þú ættir ekki að missa af. Það var frábær stemning síðast,“ segir í tilkynningu frá Mælifelli.
Hér fyrir neðan er smá sýnishorn af hljómsveitinni sem getur brugðið sér í allra kvikinda líki.
http://www.youtube.com/watch?v=8ffr4OD1hho