Dýr sparnaður

Nú standa stjórnarþingmenn með kutana, blóðugir upp að öxlum við að skera niður útgjöld ríkisins til hinna ýmsu mála um leið og þeir reyna að fóta sig á mjög svo hálum velli pólitíkurinnar. Það er skiljanlegt að hagræðingar sé þörf í ýmsum málum en sums staðar er búið að skera inn að beini og jafnvel verið að aflima þar sem síst skyldi.

 

Endurhæfingardeild Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki er dæmi um þann gjörning. Nú er raunveruleg hætta á að henni verði lokað ef þeir sem fara með völdin halda áfram með slátrarahnífinn og maður spyr í einfeldni sinni; til hvers? Það hefur nefnilega komið í ljós að sparnaðurinn við lokun deildarinnar verður enginn hjá ríkinu, þarna verður aðeins um tilfærslu á peningum að ræða. Þörfin fyrir þjónustuna hverfur ekki heldur lengist sú biðröð sem þegar er til staðar hjá öðrum endurhæfingarstöðvum á landinu og hver vill giska á hve mikill sparnaður fæst með því að greiða ferðir, uppihald, vinnutap og ég veit ekki hvað, ekki bara sjúklingsins heldur einnig þess sem stendur honum næstur. Kæra Norræna velferðastjórn, slíðraðu kutann áður en illa fer.

/ Leiðari Feykis

Fleiri fréttir