„Ef ég verð heppinn fæ ég silung“

Önnur ljóðabók Eyþórs Árnasonar frá Uppsölum í Blönduhlíð kom úi í gær þriðjudag en bókin sem er líkt og hin fyrri ljóðabók ber nafnið „Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu“. Eyþór fékk bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrri bók sína Hundgá úr annarri sveit.

Eyþór mun nú á föstudag mæta heim í Blönduhlíð, fyrst í mat til mömmu og síðan í Héðinsminni þar sem hann hyggst lesa upp úr bók sinni. „Mér þótti vel við hæfi að lesa fyrst fyrir sveitungana,“ sagði Eyþór í stuttu spjalli við Feyki. Aðspurður segist hann ekki leggja inn pöntun hvað mat varðar hjá mömmu sinni en verði hann heppinn geti hann átt von á því að fá silung. Lestur Eyþórs í Héðinsminni hefst klukkan níu.

Feykir óskar Eyþóri frænda til hamingju með bókina.

Fleiri fréttir