Efling eldvarna í Húnaþingi vestra
Húnaþing vestra og Akureyri hafa gert samkomulag við Eldvarnabandalagið um að efla eldvarnir á heimilum og í stofnunum sveitarfélaganna. Samstarfið felur í sér að sveitarfélögin innleiða eigið eldvarnaeftirlit í stofnunum sínum í haust samkvæmt leiðbeiningum, gátlistum og öðrum gögnum sem Eldvarnabandalagið hefur gefið út. Þá verður fræðslu um eldvarnir beint að umsækjendum um húsaleigubætur en rannsóknir sýna að eldvarnir eru mun lakari í leiguhúsnæði en hjá þeim sem búa í eigin húsnæði.
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra, segir mikilvægt að sveitarfélög gangi á undan með góðu fordæmi í þessum efnum. „Það er mjög mikilvægur liður í samstarfinu við Eldvarnabandalagið að allt starfsfólk sveitarfélagsins mun fá fræðslu um eldvarnir bæði á vinnustaðnum og heima. Það er líklegt til að auka vitund fólks um eldvarnir og hafa áhrif á eldvarnir í stofnunum Húnaþings vestra,“ segir Guðný Hrund.
Eldvarnabandalagið hefur útbúið leiðbeiningar og önnur gögn vegna eigin eldvarnaeftirlits fyrirtækja og stofnana og verða þau höfð til hliðsjónar í samstarfinu við Akureyrarbæ og Húnaþing vestra. Þjálfaðir verða eldvarnafulltrúar sem annast eftirlit með eldvörnum í stofnunum sveitarfélaganna samkvæmt gátlistum Eldvarnabandalagsins. Þá fá allir starfsmenn sveitarfélaganna fræðslu um eldvarnir á vinnustaðnum og heima fyrir og verður þeim afhent handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins. Eldvarnabandalagið leggur til allt efni og ráðgjöf án endurgjalds.