Eflum Byggð í Húnaþingi vestra
Eflum Byggð í Húnaþingi vestra hefst að nýju þriðjudaginn 11. september og er þetta lokaönnin, er kemur fram í 34. tbl. Sjónaukans. Eflum Byggð er námsmönnum að kostnaðarlausu og eru nýjir námsmenn velkomnir.
Fyrsta kennslan er í tölvufræði og mun Oddur Sigurðarson kenna tvisvar sinnum í viku á Höfðabraut 6 á Hvammstanga. Frumkvöðlafræði verður svo kennd síðar og auglýst þegar nær dregur.
Skráningar eru hjá Helgu Hinriks í síma 864 6014 eða á netfangið helgahi@farskolinn.is, eða hjá Farskólanum í síma 455 6010.