Eftirvænting fyrir fyrsta mót KS-Deildarinnar

Fyrsta mót KS-Deildarinnar verður haldið næstkomandi miðvikudagskvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki og hefst kl 19:00. Keppt verður í fjórgangi. „Mikil eftirvænting er fyrir þessu fyrsta keppniskvöldi KS-Deildarinnar. Mikið hefur verið um æfingar í Svaðastaðahöllinni að undanförnu og ljóst að liðin leggja mikið undir,“ segir í fréttatilkynningu frá Meistaradeild Norðurlands. 

Sigurvegararnir frá því í fyrra Valdimar og Hugleikur mæta. „Athygli vekur að Korgur frá Ingólfshvoli er skráður til leiks ásamt knapa sínum Artemisiu Bertus, og munu margir bíða spenntir eftir að sjá þennan mikla gæðing,“ segir í tilkynningu.  

Sýnt verður beint frá mótinu á netinu gegn gjaldi. 

Slóðin er: http://vjmyndir.cleeng.com þar sem hægt verður að horfa.

Einnig verða lifandi niðurstöður inná Facebook síðu KS-Deildarinnar.

Vakin er athygli á breyttri tímasetningu. Mótið hefst að þessu sinni kl. 19:00.

„Hvetjum alla hestaunnendur á Norðurlandi til að mæta og hvetja sín lið,“ segir loks í tilkynningunni. 

1. Hlynur Guðmundsson - Máttur frá Miðhúsum

2. Mette Mannseth - Hnokki frá Þúfum

3. Agnar Þór Magnússon - Klakinn frá Skagaströnd

4. Jóhann B. Magnússon - Mynd frá Bessastöðum

5. Hallfríður S. Óladóttir - Flipi frá Bergsstöðum 

6. Valdimar Bergastað - Hugleikur frá Galtanesi

7. Gústaf Ásgeir Hinriksson - Pistill frá Litlu Brekku

8. Líney María Hjálmarsdóttir - Völsungur frá Húsavík

9. Elvar Logi Friðriksson - Byr frá Grafarkoti

10. Barbara Wenzl - Grámann frá Hofi á Höfðaströnd

11. Anna Kristín Friðriksdóttir - Glaður frá Grund

12. Guðmundur Karl Tryggvason - Rósalín frá Efri-Rauðalæk

13. Flosi Ólafsson - Rektor frá Vakursstöðum

14. Lilja Pálmadóttir - Fannar frá Hafsteinsstöðum

15. Sina Scholz - Nói frá Saurbæ

16. Elvar E. Einarsson - Gjöf frá Sjávarborg

17. Fanney Dögg Indriðadóttir - Brúney frá Grafarkoti

18. Þórarinn Eymundsson - Taktur frá Varmalæk

19. Artemisia Bertus - Korgur frá Ingólfshvoli

20. Ísólfur Líndal Þórisson - Freyðir frá Leysingjarstöðum

21. Birna Tryggvadóttir - Baldur frá Akureyri

Fleiri fréttir