Eigendaskipti á Pardus

Hið rótgróna bifreiðaverkstæði Pardus á Hofsósi hefur skipt um eigendur. Páll Magnússon sem stofnaði það á sínum tíma, ásamt Birni Níelssyni, og hefur rekið það frá upphafi, hefur nú selt Rúnari Númasyni og Valdísi Hálfdánardóttur á Hofsósi verkstæðið.

Feykir náði tali af Rúnari þar sem hann var í girðingarvinnu á Þrastastöðum, en þar reka þau sauðfjár- og nautgripabúskap, auk þess að vera með trésmíðafyrirtæki í félagi við fjóra aðra. „Það var skrifað undir rétt fyrir Jónsmessu og nú er þetta allt að smella með fjármögnunina,“ sagði Rúnar.

Rúnar segir að stefnan sé að rúlla rekstri Pardus áfram eins og verið hefur og segist hann svo heppinn að hafa þar ýmsa reynda og góða starfsmenn sem verði áfram. „Við ætlum að efla þjónustuna, ekki síst í rafmagninu, og þjónusta viðskiptavini til sjávar og sveita. Það er vel hægt að stækka Pardus sem vinnustað ef næg verkefni eru fyrir hendi, verkstæðið sem slíkt bíður alveg upp á það, sagði Rúnar að lokum, bjartsýnn á framhaldið.

Fleiri fréttir