Einlæg gleði og hrifning á jólatónleikaveislu

Tónlistarskóli Skagafjarðar bauð til jólatónleikaveislu í Miðgarði í Varmahlíð sunnudaginn 11. desember. Um 250 manns sóttu þessa tónaveislu þar sem nemendur Tónlistarskólans í Varmahlíðarskóla stigu á stokk hvert af öðru.

Atriðin voru alls 28 þar sem um var að ræða einleik, tvíleik og samleik í ýmsum útfærslum. Að sögn Ágústs Ólasonar skólastjóra Varmahlíðarskóla voru þarna samankominn stór hópur afar efnilegra tónlistarmanna sem sýndu eftirtektarverða takta en um eitthundrað nemendur komu fram.

Í lok tónaveislunnar stigu yngri og eldri skólakór Varmahlíðarskóla á svið og sungu þrjú lög við undirleik nemenda og kennara Tónlistarskólans. „Var hér um að ræða stórtónleika sem viðstaddir voru afar ánægðir með og einkenndi þá sem kom skýrt fram í kröftugu lófataki eftir hvert atriði og í lok tónleikanna,“ sagði Ágúst.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru af starfsfólki Varmahlíðarskóla.

Fleiri fréttir