Einn heimamaður heimsótti Glaumbæ

Byggðasafn Skagfirðinga í Glaumbæ tók þátt í Sögulegri safnahelgi um sl. helgi og var með opið hús frá kl. 13-17 á laugardeginum. Samkvæmt heimasíðu Byggðasafnsins er ekki sé hægt að segja að heimafólk hafi flykkst að því einungis einn skagfirðingur heimsótti safnið.

Gestafjöldi dagsins var hins vegar eins og á hásumardegi þar sem 22 gestir lögðu leið sína á safnið. Þar af voru þrír íslenskir og 19 erlendir. Þar af voru 14 manna hópur frá Englandi sem bókaður var í sumar, bílstjóri og leiðsögumaður hópsins voru íslenskir. Hinir gestirnir voru hjón í brúðkaupsferð frá New York og mæðgur frá Kaliforníu, þær voru að leita að földum hlut í  Geocaching-leiknum, sem safnið er þátttakandi í.

Fleiri fréttir