Einstakt hljóðfæri til Íslands

Barokksmiðja Hólastiftis hefur látið smíða á Ítalíu hljóðfæri sem er einstakt í sinni röð hér á landi. Þetta er trúlega fyrsta hljómborðshljóðfærið sem smíðað er fyrir Íslendinga og er algjörlega sniðið að flutningi endurreisnar- og snemmbarokktónlistar. Hljóðfærið kostar um tvær og hálfa milljón króna og verður vígt á fyrsta degi Barokkhátíðarinnar á Hólum, 27. júní.

Barokksmiðja Hólastiftis var stofnuð árið 2009 til þess að efla áhuga Íslendinga á barokktónlist og öðrum listum barokktímans. Fyrsta Barokkhátíðin á Hólum var haldin sama sumar og síðan hefur hátíðin verið haldin um og fyrir síðustu helgi júnímánaðar ár hvert. Frá upphafi hefur Barokksmiðjan stefnt að því að eignast sérhæfð barokkhljóðfæri og draumurinn er svokallað strengjaorgel, sambyggt kistuorgel og semball. Nú má segja að annar hluti strengjaorgelsins sé í höfn því hljóðfærið sem Barokksmiðjan fær afhent á næstu dögum er lítið hljóðfæri af sembalfjölskyldunni, svokallaður virginall, sem meiningin er að hægt verði að tengja við orgelið í fyllingu tímans þegar Barokksmiðjan hefur aflað fjár til smíði þess. Strengjaorgel voru nokkuð algeng á barokktímanum. Í strengjaorgeli má tengja saman orgelið og sembalinn þannig að bæði hljóðfærin hljómi þótt aðeins sé leikið á hljómborð annars þeirra. Slíkt hljóðfæri hentar starfsemi Barokksmiðjunnar mjög vel enda hefur það mjög fjölbreytilegan hljóm en er líka auðvelt í flutningi og meðfærilegt til notkunar við ýmis tækifæri.

Hljóðfærið nýja

Virginallinn sem Barokksmiðjan hefur nú látið smíða er ítalskrar gerðar, eftirmynd frægs hljóðfæris frá 17. öld, svonefnds Guarracino-virginals. Ítalski sembalsmiðurinn Tony Chinnery smíðaði gripinn. Hann er í fremstu röð sembalsmiða í Evrópu. Hljóðfærið er stillt í svokallaðri meantone-stillingu en þýðir að hljóðfærið er ekki jafnstillt eins og hljómborðshljóðfæri nútímans. Þetta þýðir að ekki er hægt að leika á hljóðfærið í öllum tóntegundum en í staðinn fæst magnaður barokkhljómur. Tónhæðin er líka lægri en í nútímahljóðfærum, stillt um það bil hálftóni lægra. Á hljóðfærinu er nokkuð sem kallað er subsemitones á erlendum málum. Þetta eru aukatónar á hljómborðinu sem fjölgar þeim tóntegundum sem hægt er að spila í. Sitthvor snertillinn er fyrir nóturnar dís og es annars vegar og gís og as hins vegar. Einkenni þessarar stillingar eru hinar tandurhreinu þríundir sem ekki eru í jafnstilltum hljóðfærum og svo hefur hver tóntegund sinn lit eða karakter. Heimavöllur hljóðfærisins nýja verður á Akureyri og á Hólum í Hjaltadal.

Alþóðleg barokkhátíð

Nýja hljóðfærið verður í öndvegi á Barokkhátíðinni á Hólum sem haldin verður 27.-30. júní. Hún vex og dafnar og nú má kalla hana alþjóðlega því góðir gestir koma til hátíðarinnar frá bæði Svíþjóð og Finnlandi. Sænski sembal- og orgelsnillingurinn Lars Sjöstedt kemur gagngert til að vígja virginalinn nýja. Það er vel við hæfi því hann aðstoðaði við val á hljóðfærasmiðnum og útfærslu hljóðfærisins. Með Lars kemur eiginkona hans, úkraínski fiðluleikarinn Maria Sjöstedt, og tónleikar þeirra verða í Hóladómkirkju fimmtudagskvöldið 27. júní kl. 20. Frá Finnlandi kemur kvartettinn Un'altra ondata, skipaður sérmenntuðum barokkhljóðfæraleikurum í fremstu röð. Kvartettinn skipa þau Petri Arvo blokkflautuleikari, hvítrússneski sembal- og orgelleikarinn Julia Tamminen, Louna Hosia, selló- og gömbuleikari, og Anni Elonen barokkfiðluleikari. Þau halda tónleika í Hóladómkirkju laugardaginn 29. júní kl. 17 og leika ítalska barokktónlist. Julia Tamminen leikur líka á orgel kirkjunnar á hádegistónleikum föstudaginn 28. júní kl. 12.30. Ungur og efnilegur baritónsöngvari kemur líka fram á hátíðinni, Hollendingurinn Christof Laceulle, sem verður meðal þátttakenda á meistaranámskeiði Jóns Þorsteinssonar.

Aðrir viðburðir

Barokkhátíðin á Hólum er hugsuð sem vinnusmiðja þar sem fólk kemur saman til að læra og skapa. Þarna hittast lærðir og leikir, æfa saman í stærri og smærri hópum og starfandi er hljómsveit hátíðarinnar sem kemur meðal annars fram á glæsilegum lokatónleikum hátíðarinnar. Ingibjörg Björnsdóttir listdanskennari kennir barokkdansa, bæði létta og erfiðari, Jón Þorsteinsson, söngkennari í Amsterdam, heldur meistaranámskeið fyrir einsöngvara, Margrét Eggertsdóttir, bókmenntafræðingur á Árnastofnun, heldur fyrirlestur um tengsl og samspil handrita og prentaðra bóka á Hólum, boðið er upp á barokk-quiz, haldnir þrennir hádegistónleikar, farið í gönguferð í Gvendarskál og fleira og fleira. Aðgangur er ókeypis að öllum viðburðum hátíðarinar. Til að mynda er öllum frjálst að koma og spreyta sig á barokkdönsum eða bara fylgjast með. /Fréttatilkynning

Fleiri fréttir