Eitt stig vantar til að tryggja sæti í 1. deild eftir tap gegn KF
Ekki tókst liði Tindastóls/Hvatar að tryggja sér sæti í 1. deild í dag en þá lutu strákarnir í gras á Ólafsfirði þar sem þeir léku gegn KF í 21. umferð. Höttur frá Egilsstöðum sigraði sinn leik og skaust í efsta sæti deildarinnar og tryggði sér þar með sæti í 1. deild. Lokatölur á Ólafsfirði urðu hins vegar 2-0 fyrir heimamenn.Það voru Sigurbjörn Hafþórsson og Milan Lazarevic sem gerðu mörk heimamanna.
Næstkomandi laugardag kl. 14 mæta strákarnir liði Völsungs á Sauðárkróksvelli en Húsvíkingar gerðu sér lítið fyrir í dag og rassskelltu lið Dalvíkur/Reynis 7-3 en Eyfirðingarnir voru í þriðja sæti deildarinnar fyrir leikina í dag. Baráttan um laust sæti í 1. deild stendur á milli Tindastóls/Hvatar, Aftureldingar úr Mosfellsbæ og Njarðvíkur. Markatala Tindastóls/Hvatar er lökust þessara liða en Afturelding og Njarðvík eru þremur stigum á eftir Tindastóli/Hvöt og geta því náð okkar strákum að stigum. Það vantar því eitt stig til að gulltryggja sæti í 1. deild. Áfram Tindastóll/Hvöt!