Ekkert gerist af sjálfu sér

Guðmundur KarlJónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Mynd: PF
Guðmundur KarlJónsson forstöðumaður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli. Mynd: PF

Skíðasvæðið í Tindastól ásamt Félagi ferðaþjónustunnar í Skagafirði efndu til hádegisfundar í dag á Ólafshúsi á Sauðárkróki og ræddu um vetrarþjónustu í Skagafirði. Að sögn Viggós Jónssonar var vel mætt og góðar umræður sem fóru fram. Á fundinn mættu m.a. Hjalti Páll Þórarinsson frá Markaðsstofu Norðurlands, Sigríður Sigurðardóttir safnvörður í Glaumbæ, Friðleifur E. Guðmundsson frá Eleven Experiens á Deplum og Guðmundur Karl Jónsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli, sem öll ræddu um ferðamanninn og vetrartímann.

Viggó Jónsson framkvæmdastjóri skíðasvæðisins í Tindastóli flutti einnig tölu og sagði frá uppbyggingu á skíðasvæðinu en hann hafði frumkvæði að fundinum. Hann var mjög ánægður með fundinn og sagði að skemmtilegir fyrirlestrar hefðu verið fluttir um ýmis mál er vörðuðu vetrarferðamennsku. Sagði hann að komið hefði fram hjá Friðleifi, sem rekur ferðaþjónustu fyrir efnamikið fólk, að meiri afþreyingu vantaði á svæðið fyrir það fólk sem kæmi yfir vetrarmánuðina. Sagði Viggó að svona fundur væri liður í því að vekja upp áhuga fólks á aðgerðum og hvetja til framkvæmda. „Sá sem ekki stígur fram, skilur ekki eftir sig spor,“ segir Viggó sem vill meina að ekkert gerist af sjálfu sér.

Fleiri fréttir