Ekkert svar borist vegna áhættumats
Á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra á mánudaginn var lagt fram tölvubréf Páls Björnssonar lögreglustjóra frá 18. nóvember sl. með svar við fyrirspurn vegna slyss sem varð við Hvammstangahöfn þann 24. ágúst sl.
Á fundinum kom fram að ekki hefði borist svar við fyrirspurn um hvar hægt væri að nálgast áhættumat sem gert hefur verið fyrir Norðurland vestra, þrátt fyrir ítrekanir. Var sveitarstjóra falið að senda erindi til Ríkislögreglustjóra og óska eftir áhættumati fyrir Húnaþing vestra.