Ekki ráðið án samþykkis sveitastjóra
Byggðarráð Skagafjarðar samþykkti á fundi sínum sl. fimmtudag að allar auglýsingar um laus störf og allar ráðningar starfsmanna sveitarfélagsins verði bornar undir sveitarstjóra til samþykktar. Það sama á við þegar tímabundin leyfi frá störfum eru veitt.
Um helgina mátti heyra á formanni samtaka sveitafélaga að viðbrögð sveitarfélaga við kjarasamningum verði að draga úr ráðningum og jafnvel segja upp fólki.