Ekki valkostur í stöðunni að við látum þetta yfir okkur ganga

-Því verður ekki unað að grunnheilbrigðisþjónusta í héraðinu sé kerfisbundið brotið niður með þessum hætti. Það er verið að færa okkur marga áratugi aftur í tímann með aðgengi að velferðarþjónustu og vega að öryggi og búsetuskilyrðum á svæðinu, segir Bjarni Jónsson forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar við þeim niðurskurði sem Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er ætlað að framkvæma samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar.

 

-Ár eftir ár er heilbrigðisstofnunninni okkar ætlað að taka á sig meiri skerðingar en gerast annarsstaðar á landinu. Við munum bregðast við þessum tíðindum með viðeigandi hætti og krefjast leiðréttingar. Það er ekki valkostur í stöðunni að við látum þetta yfir okkur ganga, svo einfalt er það, segir Bjarni. Enn á eftir að taka málið fyrir hjá byggðaráði en það verður gert í vikunni segir Bjarni sem er allt annað en kátur með þessar kveðjur norður.

Fleiri fréttir