Eldri borgarar á faraldsfæti

Félag eldri borgara í Húnaþingi vestra ætlar að bregða undir sig betri fætinum á föstudaginn í næstu viku, en þá er fyrirhuguð dagsferð um Austur-Húnavatnssýslu og Skagafjörð.

Farið verður frá Nestúni á Hvammstanga kl. 9:00 föstudaginn 30. ágúst.
Ekið verður inn Svartárdal um Eyvindarstaðaheiði að Steinsstöðum og snædd miðdegishressing að Bakkaflöt. Eftir það verður óvissuferð sem endar með kvöldverði í Dæli. Ferðin er nánar auglýst í Sjónaukanum.

Fleiri fréttir