Eldur í fjósi í Hegranesi - viðtal og myndir

Um klukkan eitt í nótt kviknaði í fjósi á bænum Egg í Hegranesi í Skagafirði. Það var húsfreyja á þarnæsta bæ, Hamri, sem varð vör við brunalykt og eftir að hafa aðgætt næsta nágrenni ók hún  að að Egg og vakti ábúendur þar. Hægur andvari var og vindáttin þannig að brunalyktin fannst ekki heim að íbúðarhúsinu á Egg.

Þegar Feykir kom á staðinn upp úr kl. átta í morgun voru ábúendurnir, Embla Dóra Björnsdóttir og Davíð Logi Jónsson, við hreinsunarstörf í fjósi og hlöðu, ásamt föður Davíðs og bróður.

Davíð segir að slökkvilið frá Sauðárkróki hafi þegar verið kallað á staðinn og nokkuð greiðlega hafi gengið að slökkva eldinn, en hann telur að það hafi tekið um hálftíma. Davíð segir líklega hafa kviknað út frá hitalampa í sem var við millivegg milli fjóss og hlöðu, en það eigi þó eftir að rannsaka betur.

Talsverðar skemmdir eru á fjósinu, þar sem rjúfa þurfti þak til að slökkva eldinn. Auk þess er rafmagnslaust og lagnir fyrir rörmjaltakerfi bráðnuðu í hitanum. Þá eru talsverðar reykskemmdir og mikið vatn í fjósi og hlöðu eftir slökkvistarfið. Veggurinn þar sem eldsupptökin urðu er einnig mikið skemmdur.

Kýrnar voru komnar aftur í fjós, en að sögn Davíðs er hægt að nota alla básana nema átta og þar sem fjósið var ekki fullt sleppur þetta til. Embla sagðist þó ekkert vita hvernig færi með mjaltir, né heldur hve langan tíma taki að gera við þannig að mjaltakerfið verði nothæft.

Iðnaðarmenn var þegar farið að drífa að, auk þess sem von var á rannsóknarlögreglu til að rannsaka eldsupptökin og fulltrúa tryggingafélagsins. Þá var von á ættingjum Emblu sem voru lagðir af stað að sunnan til aðstoðar.

Davíð og Embla sem keyptu jörðina í fyrravor og hafa því búið á henni í um þrettán mánuði, telja sig vel tryggð fyrir tjóni sem þessu. „Það kom hingað sölumaður og seldi okkur sérstaka bændatryggingu svo það ætti að vera í góðu lagi,“ segir Embla.

.

Fleiri fréttir