Eldur í Húnaþingi 24.-27. júlí í ár

Dagsetningar unglistahátíðarinnar Eldur í Húnaþingi hafa verið ákveðnar fyrir árið í ár. Hátíðin mun hefjast á miðvikudeginum 24. júlí nk. og ljúka með dansleik laugardagskvöldið 27. júlí. Norðanátt.is greinir frá þessu.

Fyrirtæki og félög geta svo farið að undirbúa sig fyrir komu Gerðar Rósu Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra hátíðarinnar í ár, en það styttist í að hún mun fara að safna styrkjum fyrir hátíðina.

„Það eru því rétt rúmir fjórir mánuðir í gleðina og vissara að taka dagana frá,“ segir á Norðanáttinni.

Fleiri fréttir