Eldvarnir í brennidepli hjá Húnaþingi vestra
Eldvarnir eru í brennidepli hjá Húnaþingi vestra og starfsfólki þess um þessar mundir. Í samræmi við samkomulag Húnaþings vestra og Eldvarnabandalagsins um eflingu eldvarna fær allt starfsfólk sveitarfélagsins fræðslu um eldvarnir bæði á vinnustað og heima. Fyrir dyrum stendur jafnframt innleiðing eigin eldvarnaeftirlits hjá öllum stofnunum sveitarfélagsins. Þar gegna eldvarnafulltrúar lykilhlutverki. Vaskur hópur karla og kvenna hefur þegar tekið að sér hlutverk eldvarnafulltrúa og hafa Eldvarnabandalagið og Slökkvilið Húnaþings vestra veitt þeim nauðsynlega fræðslu og þjálfun.
Aukum öryggi
Húnaþing vestra hefur fullan hug á að standa mun betur að eldvörnum og öryggismálum en gert hefur verið til þessa. Í innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits felst einmitt skýr yfirlýsing um að efla eldvarnir með reglulegu eftirliti og viðhaldi. Markmiðið er að auka öryggi starfsfólks, nemenda og viðskiptavina og draga úr líkum á tjóni á rekstri og eignum.
Innleiðing eigin eldvarnaeftirlits hjá fyrirtækjum og stofnunum er eitt af áhersluverkefnum Eldvarnabandalagsins en það er samstarfsvettvangur tíu fyrirtækja, félagasamtaka og stofnana um að auka eldvarnir á heimilum og í fyrirtækjum og stofnunum. Eldvarnabandalagið hefur útbúið fræðsluefni um eldvarnir heimilisins og eigið eldvarnaeftirlit og er stuðst við það í samstarfinu við Húnaþing vestra.
Samstillt átak
Eldvarnir hjá Húnaþingi vestra verða ekki óaðfinnanlegar á einni nóttu. Við bindum hins vegar miklar vonir við að með réttu hugarfari og samstilltu átaki stjórnenda og starfsmanna sveitarfélagsins, Eldvarnabandalagsins og Slökkviliðs Húnaþings vestra megi efla eldvarnir til muna á næstu mánuðum og misserum. Jafnframt væntum við þess að reynslan af samstarfinu geti nýst öðrum sveitarfélögum og fyrirtækjum við innleiðingu eigin eldvarnaeftirlits og í því skyni að auka vitund starfsmanna og annarra um mikilvægi eldvarna á heimilum og vinnustöðum.
Guðný Hrund Karlsdóttir, sveitarstjóri
Garðar H. Guðjónsson, verkefnastjóri Eldvarnabandalagsins