Ellert með lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins
Ellert Heiðar Jóhannsson fæddur og uppalinn Sauðkrækingur á lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem hófst sl. laugardagskvöld. Lagið er í hressari kantinum og ætti að falla í kramið hjá áhorfendum Sjónvarpsins sem ráða hvaða lag kemst áfram.
Ellert er hvað þekktastur fyrir framlag sitt til poppmenningarinnar með hljómsveitinni Von til margra ára en hefur snúið sér að öðrum störfum. Hann býr nú í Grindavík þar sem hann starfar við sjómennsku.
Lag Ellerts heitir Ég kem með en textinn er eftir Mikael Tamar Elíasson.
Hægt er að nálgast lag Ellerts HÉR