Eltu mig þjónustar fyrirtæki á samskiptamiðlum og í vefuppsetningu
Hrafnhildur Viðarsdóttir á Sauðárkróki er að koma á koppinn fyrirtæki sem sérhæfir sig í samfélagsmiðlum en nafn fyrirtækisins, Eltu mig (e. Follow me), er einmitt skírskotun í miðlana. „Fyrirtækið er hugsað til að sjá um samfélagsmiðla fyrir önnur fyrirtæki. Ég hef orðið vör við þörf fyrir þessa þjónustu en margir í fyrirtækjarekstri hafa kannski ekki tíma til að standa í því að tileinka sér þekkingu á flóru samfélagsmiðlana og verða því af mikilvægum markaðstækifærum,“ sagði Hrafnhildur í spjalli við blaðamann Feykis.
Sjálf hefur Hrafnhildur lifað og hrærst í heimi samskiptamiðlana frá því þeir komu fyrst á sjónarsviðið. „Minn bakgrunnur í samfélagsmiðlum er stór og breiður. Ég byrjaði á MySpace á sínum tíma og kom mér upp síðu á Facebook árið 2007 þegar miðilinn var fyrst að ryðja sér til rúms. Þá var fólk að segja: „Glætan að ég fari á þetta Facebook, það er bara bóla. Það eru allir á MySpace! En nú hefur dæmið alveg snúist við og fólk man varla eftir MySpace,“ segir hún og hlær.
Umsjón Hrafnhildar með samskiptamiðlum fyrirtækjanna felst í því að halda þeim lifandi – ein færsla inn á Facebook daglega og myndir inn á Instagram og Twitter 3-4 sinnum í viku ásamt því að taka á móti fyrirspurnum sem berast og koma þeim áfram. En samskiptamiðlaþjónusta er ekki það eina sem Hrafnhildur hyggst bjóða upp á. „Ég mun líka sjá um uppsetningu á heimasíðum fyrir fyrirtæki og ferðaþjónustuaðila, og umsjón með innihaldi á þeim eftir að þær eru komnar í loftið, sjá um að skrifa pistla og/eða tilkynningar og svo framvegis svo vefurinn haldist ferskur og lifandi.“
Viðtalið við Hrafnhildi má lesa í Feyki vikunnar.