Endurbætur á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna

Húsnæði Byggðasafns Húnvetninga og Strandamanna fær andlitslyftingu utandyra þessa dagana. Það eru nemendur í 5. og 6. bekk Grunnskóla Húnaþings vestra sem skreyta veggina með myndum og málningu. norðanátt.is greinir frá.
„Fyrsti nemendahópurinn hófst handa nú í morgun og teiknuðu krakkarnir myndir fríhendis á veggina og mála nú í framhaldinu. Myndirnar eru tengdar sögu og kennileitum í Húnaþingi vestra, en það hafa krakkarnir verið að vinna með nú í vetur hjá Guðrúnu Ósk Steinbjörnsdóttur, kennara þeirra,“ segir í frétt Norðanáttar, sem birt var á vefnum í gær.
Myndir af krökkunum má skoða á Norðanátt.is.