Endurhæfingardeild verður ekki lokað segir Björn Valur
Björn Valur Gíslason segir á DV.is að stjórnendum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki eigi að vera það ljóst að endurhæfingardeildinni verður ekki lokað en Skagfirðingar hafa verið mjög áhyggjufullir um framtíð hennar. „Það stendur ekki til að loka þessari deild,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður fjárlaganefndar Alþingis við blaðamann DV og hrekur þær fullyrðingar sem hafðar hafa verið uppi í fjölmiðlum og þ.á.m. hér á Feyki. Segir hann að fjármagn hafi verið tryggt til að halda deildinni starfandi.
„Það hefur verið tryggt að þessari endurhæfingardeild verður ekki lokað vegna niðurskurðar í útgjöldum og stjórnendum sjúkrahússins á að vera fullkunnugt um það,“ segir Björn Valur í samtali við DV.
Feykir hafði samband við Hafstein Sæmundsson framkvæmdastjóra HS og spurði út í þessi orð þingmannsins. -Ég hef sagt að sundlauginni verði lokað og endurhæfingarþjónusta skert og ekki rekin í í óbreyttri mynd. Veit ekki hvað Björn Valur á við, segir Hafsteinn.