Endurhæfingarrými opna á Sauðárkróki

Tvö endurhæfingarrými á HSN Sauðárkróki verða opnuð þann 1. mars nk. en áætlað er að þeim fjölgi í fjögur næsta vetur. Að þessu verkefni hefur verið unnið í samvinnu Kristsnesspítala, endurhæfingardeildar SAk, og HSN með stuðningi heilbrigðisráðherra. Á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Norðurlands kemur fram að um sé að ræða rými fyrir eldri einstaklinga þar sem slitgigt er aðalvandamálið og ekki er þörf á sérhæfðri endurhæfingu.

„Þessi hópur hefur ekki komist á forgangslista hjá Kristsnesspítala og því áformað að nýta góða endurhæfingaraðstöðu á Sauðárkróki til að koma til móts við hann. Gert er ráð fyrir að taka við tilvísunum frá öllum starfsstöðvum HSN og að þær verði eins og áður sendar Kristsnesspítala þar sem þær verða metnar.

Áætlað er að tveir, en síðan fjórir, einstaklingar verði í endurhæfingu þrjár vikur í senn fimm daga vikunnar en fari að öllu jöfnu heim um helgar. Starfsemin verður átta mánuði á ári, september til desember og janúar til maí,“ segir í frétt HSN.

Fleiri fréttir