Endurreikningi afsláttar á fasteignaskatt lokið

Endurreikningi afsláttar á fasteignaskatt vegna ársins 2013 hjá Sveitarfélaginu Skagafirði er lokið. Við álagningu fasteignagjalda í janúar s.l. var tilkynnt að inneign eða skuld gæti myndast við endanlegan útreikning á afslætti vegna fasteignaskatts, á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega.

Samtals fengu 212 fasteignaeigendur lækkun á fasteignaskatt þetta árið, að upphæð 6,8 milljónir króna samtals. Þeir elli- og örorkulífeyrisþegar sem sveitarfélagið þarf að krefja um endurgreiðslu afsláttarins munu fá sendan greiðsluseðil fyrir ofgreiðslunni. Ef inneign hefur myndast þá verður henni fyrst ráðstafað upp í ógreidd fasteignagjöld og eftirstöðvar, ef einhverjar eru, síðan greiddar inn á bankareikning viðkomandi.

Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir lækkun fasteignaskatts er að finna á heimasíðu sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir