Endurtaka þarf leik í unglingaflokki eftir kæru Keflvíkinga

Unglingaflokkar Tindastóls og Keflavíkur mættust á dögunum í bikarkeppni og var leikið á Króknum. Lið Tindastóls sigraði 82-70 en síðar ákváðu Keflvíkingar að kæra framkvæmd leiksins því að ekki hafi verið rétt staðið að því að raða dómurum á leikinn. Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ féllst á málatilbúnað Keflvíkinga og þarf því að endurtaka leikinn en þá væntanlega með öðrum dómurum.

Í úrskurði aga- og úrskurðarnefndar segir: -Úrslit í leik Tindastól og Keflavíkur í bikarkeppi unglingaflokks, sem fram fór 28. janúar 2014, eru ógild. Leikurinn skal endurtekinn svo fljótt sem kostur er.-

Það er vel þekkt framkvæmd í kringum leiki á landsbyggðinni að fengnir séu dómarar af svæðinu en þá með samþykki gestaliðsins. Í kærunni kemur fram að aðstoðarþjálfari Keflavíkur hafi samþykkt að það yrði gert en með þeim áskilnaði að fengnir yrðu dómarar með réttindi frá KKÍ. Engir slíkir dómarar eru á Króknum og voru því tveir leikmenn mfl. Tindastóls fengnir til að dæma leikinn og segir í kæru Keflavíkur að þeir hafi verið mjög hlutdrægir í leiknum, heimaliðinu í vil.

Aðilum bar ekki saman um hvort aðstoðarþjálfari Keflavíkur hafi gert það að skilyrði  að fengnir yrðu dómarar með réttindi frá KKÍ.

Sjá má á samfélagsmiðlum að heimamenn eru afar ósáttir við niðurstöðuna en svo virðist sem gestirnir hafi engar athugasemdir gert á leikstað þó öllum ætti að vera ljóst að dómararnir voru leikmenn mfl. Tindastóls og þar með flestir félagar leikmanna unglingaflokks sem margir hverjir spila einnig með meistaraflokki. Eru menn ansi hræddir um að með þessari niðurstöðu hafi aga- og úrskurðarnefnd KKÍ opnað væna ormadós.

Úrskurður aga- og úrskurðarnefndar >>

Fleiri fréttir