Engin rigning í kortunum

Í þurrviðrinu síðustu vikur hafa starfsmenn Áhaldahússins á Sauðárkróki tekið það til bragðs að vökva grasflatir meðfram götum bæjarins með öflugri haugsugu. Daglega fær grasið gusu en óhætt er að segja að allur gróður kalli á rigningu. Ekki er víst að rigni nokkuð um helgina á Norðurlandi vestra en samkvæmt Veðurstofu Íslands verður norðanátt ríkjandi á morgun, víða 5-13 m/s en hægari vindur á S-landi. Léttskýjað S- og SV-lands, annars skýjað og rigning eða súld NA-til. Hiti 6 til 12 stig, en 12 til 18 stig syðra.

Á sunnudag gerir Veðurstofan ráð fyrir norðaustan 5-10 m/s og rigningu um tíma á austanverðu landinu, en bjartviðri SV-lands. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast SV-til.

Á mánudag og þriðjudag:
Norðlæg eða breytileg átt. Víða léttskýjað S- og V-lands, annars skýjað með köflum en úrkomulítið. Hiti breytist lítið.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir þurrt og bjart veður. Fremur hlýtt.

Fleiri fréttir