Leikur Hauka og Tindastóls á Feyki TV

Frá leik Tindastóls og Hauka fimmtudaginn 29. október. Skjáskot úr myndskeiði.
Frá leik Tindastóls og Hauka fimmtudaginn 29. október. Skjáskot úr myndskeiði.

Stólarnir áttu erfiðan leik sl. fimmtudagskvöld, eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði, þegar Haukar mættu í Síkið. Lokatölur leiksins voru 64-72 og má lesa leiklýsinguna hér. Að leik loknum voru Pieti Poikola þjálfari Tindastóls og Harri Mannonen aðstoðarþjálfari leystir undan samningi við Körfuknattleiksdeild Tindastóls.

Liðið tapaði gegn Njarðvík í bikarnum í gær en að sögn Kára Maríssonar, sem hefur tekið að sér tímabundna þjálfun liðsins, er ætlunin að sigra Njarðvíkinga þegar liðin mætast á ný nk. fimmtudag í Domino´s deildinni.

Meðfylgjandi myndskeið frá leik Tindastóls og Hauka tók Kristófer Skúli Auðunsson. 

 

 

 

Fleiri fréttir