Enn snjóar í fjöll á Norðurlandi

Mikið hefur rignt í Skagafirði í dag þó sérstaklega seinni partinn og fram á nótt. Hitastigið fór hríðlækkandi er á leið og hefur verið lágt síðustu stundirnar en fjöll eru farin að hvítna niður í miðjar hlíðar. Í nótt á að lægja og stytta upp. Á morgun gerir Veðurstofan ráð fyrir suðaustan 5-10 og samkvæmt spánni fer að rigna annað kvöld. Svalt í nótt, en 8 til 13 stig á morgun.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á mánudag:
Suðlæg eða breytileg átt, 5-10 og rigning víða um land. Snýst í hæga norðvestlæga átt seinnipartinn og dregur úr úrkomu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast A-lands.

Á þriðjudag:
Suðlæg átt, 5-10 m/s. Skýjað með köflum og hiti 10 til 16 stig, en léttskýjað á N- og A-landi og hiti 16 til 21 stig.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Sunnan og suðvestanátt, 5-10 m/s. Dálítil rigning eða súld S- og V-lands og hiti 10 til 15 stig. Bjartviðri um landið norðaustanvert og hiti 12 til 22 stig, en stöku síðdegisskúrir.

Á föstudag og laugardag:
Útlit fyrir suðvestan átt. Víða skúrir, en bjart að mestu fyrir austan. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast A-lands.

Fleiri fréttir