Er endurhæfingin að loka?

 „Tappinn verður tekinn úr sundlauginni á Endurhæfingunni ef ekkert breytist í fjárlagafrumvarpinu fyrir þriðju umræðu sem verður í næstu viku“, segir Helga Sigurbjörnsdóttir í Hollvinum Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki en ráðuneyti heilbrigðismála hefur verið gert það kunnugt. Hætta er á að deildinni verði lokað ef fer sem horfir í þeim málum.

 

Skagfirðingar eru sem þrumu lostnir eftir að HS er gert að skera niður umfram aðrar heilbrigðisstofnanir í landinu og skilja ekki hvað stjórnarliðar eru að hugsa þar sem ekki hefur verið sýnt fram á að sparnaður sitji eftir fyrir ríkið þegar upp er staðið. Haft var eftir Fanneyju Karlsdóttur sjúkraþjálfa hér á Feyki að á endurhæfinguna á Sauðárkróki eru yfir 100 komur á dag sem færðust þá annað fyrir þá sem það gætu ef endurhæfingunni yrði lokað.

Magnús Jóhannesson á Sauðárkróki varð fyrir mænuskaða í vor er hann lenti í vinnuslysi og hefur verið í endurhæfingu á Grensás síðan. Til stendur að hann flytji heim til sín á Krókinn eftir viku en hann segir að það sé engu líkara en stjórnvöld vilji að hann flytji í burtu eða í besta falli að greiða undir hann dýrar ferðir annað til að komast í endurhæfingu. –Þetta leggst þungt í mig. Ég veit ekki hvort þeir vilji að maður leggist í eymd og volæði og endi sem aumingi, segir Magnús þungorður í garð ráðamanna en endurhæfingin er það sem skiptir miklu máli í hans stöðu. Mikil tilhlökkun er hjá Magnúsi að komast heim í faðm fjölskyldunnar á Sauðárkróki og ekki síður hjá fjölskyldunni að fá kappann heim eins og sést í hugnæmu vídjói sem Sigrún konan hans setti á Facebook. Raförvunartækið sem sést á myndbandinu og tengt er fótleggjum Magnúsar heldur vöðvum virkum og stefnir hann á að fjárfesta í slíku tæki sjálfur og er í samræðum um að það verði notað í hans endurhæfingu á Sauðárkróki.

Helga Sigurbjörnsdóttir ítrekar að um tilfærslu fjármagns er að ræða en ekki sparnað og segir að nú sé að duga eða drepast. Hún er búin að senda þingmönnum póst og biðja þá um að athuga gaumgæfilega hvað þeir ætli að gera og hvetur alla sem láta málið sig varða að gera slíkt hið sama. Netföng þingmanna er hægt að nálgast á vef Alþingis en eftirfarandi þingmenn sitja í fjárlaganefnd:

 

  • Árni Þór Sigurðsson 5, RN, Vg,
  • Ásbjörn Óttarsson 1, NV, S,
  • Björgvin G. Sigurðsson 1, SU, Sf,
  • Björn Valur Gíslason 8, NA, Vg, 1. varaform.
  • Höskuldur Þórhallsson 6, NA, F,
  • Illugi Gunnarsson 3, RN, S,
  • Kristján Þór Júlíusson 4, NA, S,
  • Sigmundur Ernir Rúnarsson 7, NA, Sf, 2. varaform.
  • Sigríður Ingibjörg Ingadóttir 4, RS, Sf, form.
  • Áheyrnarfulltrúi er Þór Saari 9, SV, Hr,
  • Og varamenn eru:
  • Árni Johnsen 9, SU, S,
  • Helgi Hjörvar 4, RN, Sf,
  • Lilja Rafney Magnúsdóttir 6, NV, Vg,
  • Magnús Orri Schram 7, SV, Sf,
  • Ragnheiður Ríkharðsdóttir 8, SV, S,
  • Valgerður Bjarnadóttir 6, RN, Sf,
  • Vigdís Hauksdóttir 8, RS, F, varamaður
  • Þorgerður K. Gunnarsdóttir 5, SV, S, varamaður
  • Þuríður Backman 5, NA, Vg, varamaður

Fleiri fréttir