„Er líf barna á Laugarbakka minna virði en líf barna á öðrum stöðum?“
Á Laugarbakka í Miðfirði í Húnaþingi vestra heyrast óánægjuraddir með hraðahindranir sem verið er að koma fyrir í bænum. Íbúi þorpsins, sem hafði samband við Feyki, segir að um sé að ræða svokallaðar þrengingar sem samkvæmt íbúanum ekki þrengja veginn í raun og þjóni því ekki tilgangi sínum við að hægja á þeim hraðakstri sem þarna fer í gegn.
Hinn sami íbúi lýsir einnig forundrun sinni á skilti er sett var niður í mitt þorpið sem gefur til kynna að þéttbýli sé á enda og við taki 70 km hámarkshraði.
„Þetta er hneyksli og það getur hvaða heilvita maður séð að þorpið er ekki á enda þarna, og reyndar eru bara börn akkúrat í þessum hluta þorpsins, og svo kemur allur skólinn þarna líka!“ segir íbúinn.
Þá segir hann umferðina í gegnum þorpið vera lygileg mikla og íbúar að Laugarbakka séu uggandi yfir þessu.
„Fáir trúa því fyrr en þeir sjá það að það er ekið á 100 km hraða og meira þarna í gegn alla daga ársins! Svo spyr maður sig, er líf barna á Laugarbakka minna virði en líf barna á öðrum stöðum í þessu landi?“ segir íbúinn í lokin.